Nýjar aðferðir í kosningabaráttunni?

jón bjarna

Jón Bjarnason stelur atkvæðum.

bb.is | 29.03.07 VG stelur fylgi frá öllum flokkum

Ný lög um starfsemi stjórnmálaflokka hafa beint atkvæðaveiðum flokkanna á nýjar brautir. Vinstri grænir hafa fundið mjög ódýra lausn til að bregðast við minnkandi fjármunum til kosningabaráttunnar. Nú er bara að sjá hvernig hinir flokkarnir sjá við þessu bragði þeirra. 


Íslandshreyfingin í banastuði

424596A

Grettukeppnin í hámarki.

Íslandshreyfingin sýndi sínar bestu hliðar í Stykkishólmi í gærkvöldi. Mun hún ætla að gera Ísland skemmtilegra og bauð upp á fjölmörg skemmtiatriði máli sínu til stuðnings. Fór Ómar með 13 frumsamdar ferskeytlur og hermdi eftir Steingrími Hermannsyni. Var mál manna að ef þetta er forsmekkurinn verði ekki vandamál að gera upp hug sinn fyrir næstu kosningar. Við látum eina ferskeytluna fylgja með:

Íslandshreyfing er í stuði

Erum ofsa skemmtileg

Ferðumst um með rosa gleði

Allt hér voða náttúruvænt

Allt hér voða náttúruvænt

 


Vatsgufan úr reykháfi Funa loksins hrein.

funi

Loksins hrein gufa.

Glöggir vegfarendur á Ísafirði ráku upp stór augu þegar litið var til Funa í dag. Hrein og tær vatnsgufa steig upp til himins og sameinaðist tæru loftinu með fögrum litbrigðum. Er mengun frá Funa úr sögunni að sögn bæjarstjóra.


Vinstri grænir bæta við sig.

vinstri

Stefnir í óefni. Steingrímur lengst til hægri hugar að stefnunni

Enn bæta Vinstri grænir við sig. Er nú svo komið að erfitt er orðið að koma þeim á milli staða. Gætu þeir jafnvel þurft að nota almenningssamgöngur í framtíðinni þar sem einkabíll dugar varla fyrir svo stóra og mikla menn. Hafa þeir í bígerð að skrifa undir samning við Framtíðarblandið um frekari útfærslu á dæminu


Eldflaugagarður Ómars lofar góðu

rockets

Ansi hreint skemmtilegt

Eina kosningaloforð Íslandsflokksins um eldflaugagarð á Reykjanesi er svo gott sem efnt. Má búast við að erlendir ferðamenn streymi til landsins til að líta dýrðina augum þegar allt er klappað og klárt, þannig að ekki verði mikil þörf á annari atvinnustarfsemi í landinu eftir það.


Vonir um flutning dofna.

Dabbi

Skrifstofa Davíðs

Vonir manna um flutning Seðlabankans til Ísafjarðar hafa dofnað nokkuð þar sem Davíð er gjörsamlega innmúraður á skrifstofu sína í Seðlabankanum og ekki næst nokkurt samband við hann. Eru enn bundnar vonir við að hægt verði að handsama hann á næsta vaxtaákvörðunardegi og flytja vestur í heilu lagi, ef ekki vill betur.


Seðlabankamenn óhressir

Dabbi og félagar

Allt vitlaust í miðbænum

Fregnin um flutning Seðlabankans vestur á firði hefur fallið í grýttan jarðveg hjá starfsfólki seðlabankans. Streymdu þeir út á götur í þúsundavís og mótmæltu harðlega. Má búast við umsátursástandi í miðbænum næstu vikur af þeim sökum. Ekki er talið að það trufli starfsemina svo neinu nemi þar sem fátt hefur hingað til verið vitað um hvað fram fer í bankanum, ef það er þá nokkuð.


Seðlabanki Íslands til Ísafjarðar?

Isafjordur

Passar vel.

Ekkert virðist vera því til fyrirstöðu að flytja Seðlabankann til Ísafjarðar, ef frá er talið tuð í sjoppukörlunum í Hamraborg á Ísafirði. Hefur þeim verið bent á að það vanti tilfinnanlega sjoppu í Holtahverfið.


FL grúpp í góðum málum

FL group

FL group tekur flugið

Jæja, við ætlum ekki bara að vera neikvæðir í dag. Þær fréttir voru að berast að Sigurður Helgason hefði komist í stjórn Finnair(sjá umfjöllun neðar á síðunni). Húrra fyrir Hannesi og félögum. Hvaða helvítis væl er þetta alltaf í okkur Vestfirðingum. Þegar svona fréttir berast fyllist maður krafti og bjartsýni á framtíð Vestfirskra byggða.


Brjóstumkennanlegir aumingjar

raxamyndir002

Inga Solla og Steingrímur "Tekin"

Þvílíkur aumingjaskapur að láta nappa sig svona. Boðuð af einhverjum þrýstihópi til að skrifa undir merkingarlausa yfirlýsingu um náttúruvernd. Skammist ukkar. Held að Gorgeir og Lýgteinstæn verði að fara að koma saman  góðri yfirlýsingu fyrir ístöðulausa pólitíkusa til að skrifa undir.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gorgeir og Lýgteinstæn

Höfundur

Gorgeir og Lýgteinstæn teknólógí grúpp
Gorgeir og Lýgteinstæn teknólógí grúpp
Ómálefnaleg umræða um málefnalausa menn og ómakleg málagjöld
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • flugvöllur
  • paris
  • peningar
  • fossavatn072
  • HelgiSeljan

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 185

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband